Fáðu reyndan gervigreindarsérfræðing að láni – í því umfangi sem hentar þínum rekstri.
Gervigreindarsérfræðingur að láni hjálpar fyrirtækinu þínu að greina tækifæri til að nýta gervigreind, innleiða gervigreindarstefnu, velja réttu lausnirnar og koma þeim í framkvæmd. Þú færð sérfræðing sem kynnist rekstrinum, skilur þarfirnar og hjálpar þér að nýta gervigreind þar sem hún getur skapað raunverulegt virði.
Gervigreindarsérfræðingar í samstarfi við Hoobla hafa reynslu af fjölbreyttum AI-lausnum, sjálfvirknivæðingu og stafrænni þróun og geta bæði veitt stefnumótandi ráðgjöf og tekið virkan þátt í innleiðingu og framkvæmd.
Gervigreindarsérfræðingur að láni getur meðal annars:
Þjónustan er sveigjanleg og umfangið fer eftir þörfum hvers fyrirtækis, hvort sem þig vantar sérfræðing til að greina hvar tækifærin liggja, nokkra tíma í viku, í ákveðið starfshlutfall eða til að leiða afmarkað gervigreindarverkefni allt frá hugmynd að innleiðingu.