Bókari að láni

Fáðu reyndan bókara að láni, í því umfangi sem hentar þínum rekstri.

Bókari að láni sér um bókhaldið fyrir þig og veitir persónulega þjónustu sem tekur mið af þínum rekstri og þörfum. Þú færð bókara sem kynnist fyrirtækinu, heldur utan um bókhaldið og tryggir að verkefnum sé sinnt á réttum tíma.

Bókarar í samstarfi við Hoobla eru ýmist viðurkenndir bókarar eða hafa mikla reynslu af bókhaldi og fjármálavinnu. Þeir leggja áherslu á vandvirkni, áreiðanleika og góð samskipti.

Bókari að láni getur meðal annars séð um:

  • Almennt bókhald
  • Virðisaukaskattsuppgjör
  • Launavinnslu
  • Afstemmingar og uppgjör
  • Skattframtöl
  • Ársreikninga
  • Önnur verkefni tengd bókhaldi og fjármálum

Þjónustan er sveigjanleg og umfangið fer eftir þörfum hvers fyrirtækis – hvort sem þig vantar bókara í nokkrar klukkustundir á mánuði, reglulega í hverri viku eða tímabundið vegna aukinna umsvifa/samdráttar eða forfalla.