Fáðu reyndan tæknistjóra að láni – í því umfangi sem hentar þínum rekstri.
CTO að láni kemur inn í fyrirtækið sem tæknilegur leiðtogi og hjálpar þér að taka réttar ákvarðanir um tækni, þróun og framtíðaruppbyggingu. Þú færð reyndan tæknistjóra sem kynnist rekstrinum, skilur markmiðin og tryggir að tæknin styðji við stefnu og vöxt fyrirtækisins.
CTO-ar í samstarfi við Hoobla hafa víðtæka reynslu af tæknistjórnun, hugbúnaðarþróun og stafrænni þróun og geta bæði veitt stefnumótandi ráðgjöf og tekið virkan þátt í framkvæmd.
CTO að láni getur meðal annars:
Þjónustan er sveigjanleg og umfangið fer eftir þörfum hvers fyrirtækis – hvort sem þig vantar CTO einn dag í viku, í ákveðið starfshlutfall, tímabundið vegna forfalla, vaxtar/samdráttar eða til að leiða afmarkað tækniverkefni.