Fjármálastjóri að láni

Fáðu reyndan fjármálastjóra að láni – í því umfangi sem hentar þínum rekstri.

Fjármálastjóri að láni tekur ábyrgð á fjármálastjórnun fyrirtækisins og veitir stjórnendum þá yfirsýn og ráðgjöf sem þarf til að taka upplýstar ákvarðanir. Þú færð reyndan fjármálastjóra sem kynnist rekstrinum, skilur markmiðin og hjálpar til við að tryggja góða fjármálastjórn og styðja við áframhaldandi vöxt.

Fjármálastjórar í samstarfi við Hoobla hafa víðtæka reynslu af fjármálum, rekstri og stjórnendastuðningi og geta bæði veitt stefnumótandi ráðgjöf og tekið virkan þátt í daglegri fjármálastjórnun.

Fjármálastjóri að láni getur meðal annars:

  • Séð um fjárhagsáætlanir og rekstrarspár
  • Greint rekstur, kostnað og arðsemi
  • Sett upp lykilmælikvarða og skýrar upplýsingar fyrir stjórnendur
  • Fylgst með sjóðstreymi og fjármögnunarþörf
  • Haft yfirumsjón með bókhaldi og uppgjörum
  • Bætt ferla og verklag í fjármálum
  • Aðstoðað við fjármögnun og samskipti við banka og fjárfesta
  • Undirbúið stjórnendauppgjör og gögn fyrir stjórn
  • Veitt stjórnendum fjárhagslega ráðgjöf við mikilvægar ákvarðanir

Þjónustan er sveigjanleg og umfangið fer eftir þörfum hvers fyrirtækis – hvort sem þig vantar fjármálastjóra einn dag í viku, í 10–20% starfshlutfall, tímabundið á meðan fyrirtækið vex, vegna forfalla, vegna samdráttar eða til að leiða afmarkað verkefni á sviði fjármála.