Gæðastjóri að láni

Fáðu reyndan gæðastjóra að láni – í því umfangi sem hentar þínum rekstri.

Gæðastjóri að láni hjálpar fyrirtækinu að byggja upp, innleiða og viðhalda skilvirku gæðakerfi. Þú færð reyndan sérfræðing sem kynnist rekstrinum, greinir þarfir fyrirtækisins og tryggir að ferlar, verklag og skjöl styðji við markmið og daglegan rekstur.

Gæðastjórar í samstarfi við Hoobla hafa reynslu af gæðastjórnun, ferlagreiningu og uppbyggingu stjórnunarkerfa og geta bæði veitt ráðgjöf og tekið virkan þátt í innleiðingu og eftirfylgni.

Gæðastjóri að láni getur meðal annars:

  • Byggt upp eða endurskoðað gæðakerfi og gæðahandbækur
  • Kortlagt og bætt verkferla
  • Útbúið verklagsreglur, ferla og gæðaskjöl
  • Undirbúið fyrirtæki fyrir vottanir og úttektir
  • Aðstoðað við innleiðingu og viðhald ISO-staðla
  • Skipulagt innri úttektir og eftirfylgni
  • Greint frávik og komið á umbótum
  • Aðstoðað við áhættumat og stöðugar umbætur
  • Stutt stjórnendur og starfsfólk við innleiðingu gæðastjórnunar

Þjónustan er sveigjanleg og umfangið fer eftir þörfum hvers fyrirtækis – hvort sem þig vantar gæðastjóra nokkrar klukkustundir í mánuði, einn dag í viku, tímabundið vegna innleiðingar, vegna forfalla, vegna vaxtar/samdráttar eða til að leiða afmarkað gæða- eða vottunarverkefni.