Fáðu reyndan mannauðsstjóra að láni – í því umfangi sem hentar þínum rekstri.
Mannauðsstjóri að láni tekur utan um mannauðsmál fyrirtækisins og styður stjórnendur í daglegri stjórnun og uppbyggingu vinnustaðarins. Þú færð reyndan mannauðsstjóra sem kynnist fyrirtækinu, starfsfólkinu og menningunni og vinnur með stjórnendum að því að byggja upp öflugt og faglegt starfsumhverfi.
Mannauðsstjórar í samstarfi við Hoobla hafa víðtæka reynslu af mannauðsmálum og geta bæði veitt stjórnendum ráðgjöf og tekið virkan þátt í framkvæmd og daglegum mannauðsmálum.
Mannauðsstjóri að láni getur meðal annars:
Þjónustan er sveigjanleg og umfangið fer eftir þörfum hvers fyrirtækis – hvort sem þig vantar mannauðsstjóra nokkrar klukkustundir í mánuði, einn dag í viku, í ákveðið starfshlutfall eða tímabundið vegna vaxtar/samdráttar, forfalla, breytinga eða sérstakra verkefna.