Fáðu reyndan verkefnastjóra að láni – í því umfangi sem hentar þínum rekstri.
Verkefnastjóri að láni tekur utan um verkefnið frá upphafi til enda og tryggir að markmið, ábyrgð, tímarammar og næstu skref séu skýr. Þú færð reyndan verkefnastjóra sem kynnist verkefninu og fyrirtækinu, heldur utan um alla þræði og vinnur með teyminu að því að verkefnið skili tilætluðum árangri.
Verkefnastjórar í samstarfi við Hoobla hafa fjölbreytta reynslu af verkefnastjórnun og geta komið inn á öllum stigum verkefna, hvort sem þörf er á að skipuleggja nýtt verkefni, leiða framkvæmd þess eða koma verkefni sem þegar er hafið aftur á rétta braut.
Verkefnastjóri að láni getur meðal annars:
Þjónustan er sveigjanleg og umfangið fer eftir þörfum hvers fyrirtækis, hvort sem þig vantar verkefnastjóra í afmarkað verkefni, nokkrar klukkustundir í viku, ákveðið starfshlutfall eða tímabundið á meðan á stærra verkefni eða breytingum stendur.