Hoobla ehf. (hér eftir nefnt Hoobla) gætir ýtrustu varkárni varðandi meðferð persónuupplýsinga. Persónuverndarstefna fyrirtækisins tekur til allra persónuupplýsinga, hvort sem þeirra er safnað og þær varðveittar með rafrænum hætti, á pappír eða með öðrum hætti og á við um skráningu, vörslu og vinnslu á persónuupplýsingum sem falla undir stefnuna. Stefnan er aðgengileg á heimasíðu Hoobla, www.hoobla.is.
Við berum virðingu fyrir þér og persónuupplýsingum þínum. Við viljum að þú sért upplýst(ur) um það með einfldum hætti hvernig og af hverju við söfnum, notum og varðveitum persónuupplýsingar um þig og hvaða réttindi þú hefur gagnvart okkur.
Hoobla safnar persónuupplýsingum á eftirfarandi heimildum:
Ólíkum persónuupplýsingum kann að vera safnað um þig eftir því hvort þú sért sjálfstætt starfandi sérfræðingur í samstarfi við félagið, sért einstaklingur í viðskiptum við félagið eða hvort þú komir fram fyrir hönd lögaðila í viðskiptum við félagið. Þessum upplýsingum söfnum við til þess að við getum veitt þá þjónustu sem óskað er eftir.
Þegar þú ert í viðskiptum hjá okkur söfnum við og höldum utan um upplýsingar sem tengjast viðskiptasögu þinni hjá okkur. Þessum upplýsingum söfnum við til þess að veita þér yfirsýn yfir viðskipti þín við okkur og til þess að við getum boðið þér persónulegri þjónustu.
Til þess að þú getir fengið frá okkur upplýsingar (s.s. fréttabréf og markpósta) með reglubundnu millibili ert þú beðinn um að veita okkur nauðsynlegar upplýsingar. Það er háð þínu vali. Ávallt er hægt að afskrá sig af listanum með því að senda tölvupóst á hallo@hoobla.is.
Ef þú ert sjálfstætt starfsandi sérfræðingur í samstarfi við Hoobla þá notum við upplýsingar um þig til að geta sent þér upplýsinar um ný verkefni sem passa við þína færnimerkingar og þú gætir haft áhuga á að gera tilboð í.
Þegar þú notar vefviðmót okkar söfnum við jafnframt persónuupplýsingum með vefkökum (e. cookies), IP-tölum og öðrum upplýsingum tengdum tækinu sem þú notar (s.s. gerð vélbúnaðar, útgáfu stýrikerfis o.þ.h.). Þú getur valið hvort þú kýst að gefa okkur þessar upplýsingar.
Þegar þú skráir þig inn, eru nokkur fótspor notuð til að vista innskráningarupplýsingar þínar og það skjámyndaval (e. screen display choices) sem þú velur. Ef þú velur "Remember Me" man tölvan þín innskráningaupplýsingar þínar í tvær vikur. Ef þú skráir þig út af þínum aðgangi eru innskráningafótspor samtímis fjarlægð af aðgangi þínum.
Ef þú skráir þig inn á síðuna þá setjum við inn tímabundið fótspor til að sjá hvort vefvafrarinn þinn samþykki fótsporið. Þetta fótspor safnar engum persónulegum upplýsingum og loka sér sjálfkrafa þegar þú lokar vafranum. Ef þú vilt endurstilla lykilorðið þitt, þá mun IP slóðin þín fylgja með í endurstillingartölvupóstinum.
Persónuupplýsingar sem við söfnum um þig velta á því hvaða þjónustu þú hefur óskað eftir eða í hvaða tilgangi þú nálgast okkur, upplýsingar sem við söfnum eru m.a.:
Komir þú fram fyrir hönd samstarfsaðila Hoobla, s.s. birgja, verktaka eða viðskiptamanns sem lögaðili, kann Hoobla að vinna með tengiliðaupplýsingar þínar, s.s. nafn,símanúmer og tölvupóstfang. Þá kann Hoobla að vinna með samskiptasögu og eftir atvikum reikningasupplýsingar.
Markaðssetning: Hoobla kann að nýta þær persónuupplýsingar sem viðskiptavinir hafa látið félaginu í té til þess að senda þeim tilboð og auglýsingar sem byggja á þessum upplýsingum. Slík vinnsla byggir á upplýstu samþykki viðskiptavina.
Kvartanir og ábendingar: Ef þú sendir okkur ábendingu eða kvörtun mun Hoobla almennt vinna með tengiliðaupplýsingar þínar, s.s. nafn og netfang, og efni þeirrar kvörtunar eða ábendingar sem þú hefur kosið að koma á framfæri.
Styrkumsóknir: Í tengslum við styrkumsóknir vinnur Hoobla með tengiliðaupplýsingar, s.s. nafn, kennitölu, netfang og símanúmer sem og aðrar upplýsingar sem sendar eru félaginu í slíkri umsókn.
Vinnsla þessi fer fram á grundvelli beiðni þinnar um að gera samning um styrkveitingu við félagið.
Að meginstefnu til aflar Hoobla persónuupplýsinga beint frá viðskiptavini eða forsvarsmanni viðskiptavinar.
Upplýsingar sem falla undir bókhaldslög eru varðveittar í 7 ár frá lokum viðkomandi reikningsárs. Vissar upplýsingar kann að vera nauðsynlegt að varðveita lengur, t.d. ef líkur eru taldar til þess að Hoobla komi til með að þurfa að stofna, hafa uppi eða verja réttarkröfur. Í þeim tilfellum verður varðveislutími miðaður við reglur um fyrningarfrest krafna.
Við kunnum að nota persónupplýsingar þínar til þess að:
Við kunnum að deila upplýsingum um þig með eftirfarandi aðilum:
Hoobla selur í engum kringumstæðum persónuupplýsingar til þriðja aðila. Hoobla deilir eingöngu efni til þriðja aðila þar sem slíkt er skylt skv. lögum eða ef um er að ræða þjónustuveitanda, umboðsmann eða verktaka, t.d. aðili sem er ráðinn til að sjá um upplýsinga- eða símkerfi. Teljist viðkomandi vinnsluaðili (þar sem hann vinnur með persónugreinanlegar upplýsingar) gerir Hoobla vinnslusamning við viðkomandi um þá vinnslu.
Komi til þess að Hoobla sameinist öðru félagi og/eða er yfirtekið af öðrum eigendum þá kunna upplýsinagrnar að flytjast yfir til nýs félags.
Persónuverndarstefna Hoobla nær ekki til vinnslu þriðju aðila, s.s. Facebook, Google, Apple og Microsoft, sem og þeirrar greiðsluþjónustu sem þú velur að nota. Við hvetjum þig til að kynna þér persónuverndarstefnur þeirra, þ.m.t. vefhýsingaraðila sem kunna að vísa til Hoobla.
Persónuupplýsinagr eru geymndar í viðurkenndum aðgangsstýrðum tölvukerfum þar sem passað er upp á að einungis þeir sem þurfa að hafa aðgang að gögnum hafi aðgang. Hoobla tryggir að allar varnir tölvukerfa séu til staðar, þær uppfærðar og vaktaðar reglulega. Allur tölvubúnaður sem kemur að geymslu persónuupplýsinga er frá viðurkenndum birgjum, hann er vaktaður og uppfærður reglulega.
Þegar þú býrð til prófíl á vef Hoobla þá er hann alveg falinn fyrir öðrum en starfsmönnum Hoobla, nema þegar þú gerir tilboð í verkefni. Í þeim tilvikum sér viðkomandi verkkaupi prófíl þinn og tilboð þitt.
Þannig stýrir þú alfarið ferðinni hvenær þínar upplýsingar eru sýnilegar.
Við geymum viðskiptasögu þína í allt að 4 ár nema lög krefjist eða heimili lengri varðveislutíma. Ef upplýsingarnar eru ekki lengur nauðsynlegar eða lög krefjast eyðingar þeirra verða upplýsingarnar gerðar ópersónugreinanlegar og/eða þeim eytt.
Þú hefur rétt á því að fá upplýsingar frá okkur um það hvernig persónuupplýsingar þínar eru nýttar af okkur og hvaða upplýsingar við höfum um þig. Þú hefur einnig rétt á því að uppfæra upplýsingar um þig þannig að þær séu réttar, óska eftir leiðréttingum eða að upplýsingum um þig verði eytt, enda sé ekki lengur ástæða til þess að við geymum þær. Að sama skapi getur þú óskað eftir því að fá upplýsingar um þig afhentar.
Öllum beiðnum um aðgengi að eigin upplýsingum, krafa um leiðréttingu eða eyðingu persónugreinanlegra upplýsinga skal beint á hallo@hoobla.is. Starfsmaður Hoobla mun svara beiðninni innan 5 virkra daga.
Persónuverndarstefna þessi kann að breytast með tímanum, t.d. vegna breytinga á lögum og reglum eða opinberum kröfum gagnvart okkur og meðhöndlun persónuupplýsinga. Við hvetjum þig því til þess að fylgjast reglulega með uppfærslum, en þær birtum við á vefsíðu okkar.
Persónuverndarstefna Hoobla er endurkoðuð reglulega og uppfærð ef tilefni þykir til. Síðast var stefnan uppfærð 5. febrúar 2025.