Þjónusta

Yfir 600

sérfræðingar með

Hoobla

Þrír þjónustuflokkar

Sérfræðingar

Stjórnendur

Ráðgjafar

Undirflokkar

Mannauðsmál

Gæðamál

Fjármál

Sjórnun

Sölu- og markaðsmál

Upplýsingatækni og stafræn þróun

Verkefnastjórnun

Breytingastjórnun

Stefnumótun

Samfélagsleg ábyrgð og sjálfbæra þróun

Samningagerð

Nýsköpun

Stjórnarhættir og val stjórnarmanna

Viðskiptaþróun

Vöruþróun

Hönnun

Þróun

Rekstur og bókhald

Hver er ávinningurinn?

Nýtist öllum stærðum af fyrirtækjum

Sjálfstætt starfandi sérfræðingar henta vel fyrir:

  • Afmörkuð og tímabundin verkefni
  • Tímabundin störf frá 5% til 100% starfshlutfalls í ákveðinn tíma
  • Verkefni á tímagjaldi, sniðin að þörfum viðskiptavinar

Brúum þekkingargapið

Í hraða nútímans standa mörg fyrirtæki frammi fyrir vaxandi áskorun: skorti á hæfum sérfræðingum. Þá skapast þekkingargap og þekkingargapið hamlar nýsköpun, hægir á vexti og setur aukið álag á núverandi teymi.

Á sama tíma eykst þörfin fyrir sérhæfða þekkingu í tímabundnum verkefnum og hlutastörfum. Hvort sem um er að ræða skammtímaátaksverkefni, stafræna umbreytingu eða stefnumarkandi breytingar, þá réttlætir verkefnið ekki ráðningu í fasta stöðu, en krefst engu að síður réttrar þekkingar strax.

Með Hoobla geta fyrirtæki styrkt rekstur sinn, lokið mikilvægum verkefnum og haldist samkeppnishæf – allt á meðan þau halda sveigjanleika í mannauðsmálum.

Hoobla tryggir gæðin

Miklar kröfur eru gerðar til sérfræðinga sem starfa með Hoobla hvað varðar sérfræðiþekkingu, reynslu. samskiptahæfileika og orðspor.

Ferlið við inntöku sérfræðinga:
  1. Starfsferill og orðspor sérfræðingsins er skoðað
  2. Mannauðsráðgjafi Hoobla tekur viðtal við sérfræðinginn og metur
  3. Eftir að verkefnum er lokið eru sótt meðmæli / stjörnugjöf frá viðskiptavinum
Sérfræðingar Hoobla eru alltaf á reynslutíma:

Ef viðskiptavinur er ekki ánægður með sérfræðinginn eftir að samstarf er hafið þá má ávallt bakka úr samstarfinu og þá er eingöngu greitt fyrir þær klukkustundir sem unnar hafa verið. Hoobla býðst til að aðstoða viðskiptavini sína við að finna nýjan sérfræðing í kjölfarið.

Í dag veitir Hoobla aðgang að yfir 600 sérfræðingum, þ.m.t. stórt og stækkandi net af sérfræðingum sem eru núþegar í störfum en eru opnir fyrir að taka að sér tímabundin aukaverkefni. Jafnframt fjölmörgum Íslendingum sem eru búsettir erlendis og opnir fyrir að taka að sér verkefni öðru hvoru.

Vaxandi fjöldi sjálfstætt starfandi sérfræðinga

Um allan heim fjölgar sjálfstætt starfandi sérfræðingum hratt. Sífellt fleiri sérfræðingar segja skilið við hefðbundin störf til að njóta frelsis og sveigjanleika sem fylgir því að starfa sjálfstætt. Margir kjósa nú afmörkuð, tímabundin verkefni eða lægra starfshlutfall, hvort sem er í staðbundinni vinnu eða fjarvinnu (gigg- eða skýjavinna).

Með því að tengja fyrirtæki og stofnanir við þessa sérfræðinga hjálpar Hoobla vinnustöðum að:

  • Lækka kostnað og auka sveigjanleika
  • Skala starfsemi hratt upp og hratt niður eftir þörfum
  • Fá inn ferskt sjónarhorn, nýjar hugmyndir og auka nýsköpun
  • Fá inn rétta sérfræðiþekkingu eftir þörfum og þegar það vantar